Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 11. febrúar 2020 22:25
Aksentije Milisic
Adrian hrósar Klopp í hástert: Frábær manneskja
Mynd: Getty Images
Spánverjinn Adrian, varamarkvörður Liverpool, hefur hrósað Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, í hástert og segir hann bæði magnaðan stjóra og frábæra manneskju.

Klopp tók við Liverpool árið 2015 og hefur búið til magnað lið sem vann Meistaradeildina á síðasta tímabili og nú er hin langþráði enski deildartitilinn í augnsýn.

„Það er svo auðvelt að vinna með honum. Það sem hann hefur framkvæmt hér er magnað. Hann er stjórinn en samt hegðar hann sér eins og hann sé einn af starfsliðinu. Alltaf jákvæður og glaður," sagði Adrian.

„Hann er náinn okkar og það hjálpar mikið. Æfingarnar eru kraftmiklar og ástríða hans endurspeglast í spilamennsku okkar á vellinum. Hann er líka frábær sem manneskja."

Adrian, sem fékk töluverðan spiltíma í byrjun tímabils vegna meiðsla Allisson, segir að Klopp standi með liðinu ávallt í gegnum súrt og sætt.
Athugasemdir
banner
banner
banner