Fotbolti.net
11.02.21 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Boateng ekki með Bayern í dag - Farinn til Þýskalands

Jerome Boateng

Jerome Boateng

Canon

Mynd: Getty Images

Jerome Boateng, leikmaður þýska meistaraliðsins Bayern München, verður ekki með liðinu í úrslitaleik HM félagsliða í dag vegna andláts fyrrverandi kærustu hans.
Kasia Lenhardt, sem var 25 ára gömul, fannst látin á heimili sínu í Berlín í gær en ekkert saknæmt er talið hafa átt sér stað. Talið er að hún hafi framið sjálfsvíg.

Hún var fyrrverandi kærasta Boateng en þau slitu sambandi sínu í upphafi mánaðarins.

Boateng verður ekki með Bayern í úrslitaleik HM félagsliða í dag og er farinn aftur til Þýskalands.

Bayern mætir Tigres í úrslitaleiknum en liðið vann Al Ahly 2-0 í undanúrslitum mótsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.