Fotbolti.net
11.02.26 - 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England: Van Dijk hetja Liverpool

England: Van Dijk hetja Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Sunderland 0 - 1 Liverpool
0-1 Virgil van Dijk ('61 )
England: City setur pressu á Arsenal - Ótrúlegur viðsnúningur
TENGT EFNI

England: City setur pressu á Arsenal - Ótrúlegur viðsnúningur

Virgil van Dijk var hetja Liverpool í kvöld þegar liðið vann nauman sigur gegn Sunderland á útivelli.

Sunderland hefur átt frábært tímabil og er erfitt að sækja þá heim á Leikvang ljóssins. Liverpool var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var markalaus.

Þegar um stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleiknum kom fyrsta markið þegar Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, skoraði eftir hornspyrnu. Van Dijk átti þá skalla sem varnarmaður Sunderland á stönginni skallaði inn en Van Dijk fékk markið skráð á sig.

Eftir markið átti Sunderland fínan kafla en þeir náðu ekki að koma boltanum yfir línuna, fengu ekki mörg færi til þess.

Sterkur sigur hjá Liverpool staðreynd og mjög svo mikilvægur fyrir þá. Þeir eru nú tveimur stigum frá Chelsea sem er í fimmta sæti. Sunderland situr í ellefta sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.