Fotbolti.net
11.02.26 - 13:38
Elvar Geir Magnússon

Heitinga líklegur bráðabirgðastjóri Tottenham - De Zerbi ætlar að hlaða batteríin

John Heitinga, aðstoðarstjóri Tottenham.

John Heitinga, aðstoðarstjóri Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

Betfair veðbankinn telur líklegast að John Heitinga taki við liði Tottenham en hann er aðstoðarstjóri liðsins. Hann tók til starfa í síðasta mánuði sem aðstoðarmaður Thomas Frank sem var rekinn í morgun.

Veðbankinn miðar við í veðmálinu að aðilinn stýri tíu leikjum svo ef Heitinga verður ráðinn bráðabirgðastjóri út tímabilið þá munu þeir sem veðja á hann fá borgað út.

Heitinga er fyrrum stjóri Ajax.
Dawson vill að fyrrum liðsfélagi sinn taki við Tottenham
TENGT EFNI

Dawson vill að fyrrum liðsfélagi sinn taki við Tottenham

Robbie Keane er annar sem er orðaður við stjórastarf Tottenham og þá mögulega bæði sem bráðabirgðastjóri eða til frambúðar.

Roberto De Zerbi, sem lét af störfum hjá Marseille í morgun, hefur verið orðaður við Tottenham en TalkSport segir ólíklegt að hann taki að sér starfið á miðju tímabili. Hann ætli að taka sér smá hlé til að hlaða batteríin.

Margir stuðningsmenn Tottenham vilja fá Mauricio Pochettino aftur en hann þjálfar bandaríska landsliðið og ómögulegt að hann taki við fyrr en eftir HM í sumar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.