Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 14:00
Elvar Geir Magnússon
Fótboltinn í aftursætinu hjá Tottenham
Þar sem er reykur er oft eldur.
Þar sem er reykur er oft eldur.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hrakfarir Tottenham halda áfram en liðið tapaði 5-2 í fyrri leik sínum gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Liðið hefur tapað sex leikjum í röð og er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Chris Waddle, fyrrum leikmaður Tottenham og núverandi íþróttafréttamaður á BBC, segir að fótboltinn hafi endað í aftursætinu hjá stjórnendum Tottenham á meðan viðskiptin séu í framsætinu.

„Tottenham Hotspur er orðið að viðskiptafélagi. Þeir eru með nýjan leikvang sem einn sá besti í heimi og aðalmálið eru viðskiptin. Fótboltinn er þar á eftir í röðinni," segir waddle

„Það þarf einhvern sem hefur fótboltahugsun og vill gera Tottenham Hotspur að frábæru félagi. Þeir hafa peningana til að gera þetta félag risastórt."

„Þangað til viðskiptin fara í aftursætið mun fólk alltaf láta óánægju sína í ljós."

Leikmenn hafi ekki trú á Tudor
Sami Mokbel, íþróttafréttamaður hjá BBC, segir að stjórnendur Tottenham þurfi að spyrja sig að því hvort bráðabirgðastjórinn Igor Tudor sé að ná til leikmanna.

„Svarið við þeirri spurningu virðist vera ljóst, fjórir leikir undir hans stjórn sem allir hafa tapast og samtals fjórtán mörk fengin á sig," segir Mokbel.

Samkvæmt heimildum BBC eru leikmenn innan hópsins séu ekki sannfærðir um að Tudor hafi það sem þarf til að leiða liðið úr þeirri erfiðu stöðu sem það er komið í.

„Stjórnendur félagsins þurfa að taka stóra ákvörðun um framtíð Tudor. Með því að reka hann svona fljótlega eftir ráðninguna myndu þeir viðurkenna að þeir hafi gert stór mistök."
Athugasemdir
banner