Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 10:56
Elvar Geir Magnússon
„Kinsky fékk sautján mínútur, Tudor ætti að fá fjóra leiki“
Mynd: EPA
„Fyrst Igor Tudor fannst það rétt að taka leikmann af velli eftir 17 mínútur þá getur hann ekki kvartað ef Tottenham rífur í gikkinn og lætur hann fara núna," segir Nathan Ridley, einn helsti íþróttafréttamaður Mirror.

Ridley telur að Tottenham þurfi að láta Tudor fara. Liðið hefur tapað öllum fjórum leikjunum sem hann hefur verið bráðabirgðastjóri og fékk 5-2 skell gegn Atletico Madrid.

Tudor setti Antonin Kinsky í markið í leiknum í Madríd í gær en tók hann svo af velli eftir aðeins sautján mínútna leik eftir hörmulega frammistöðu. Þá var staðan 3-0.

Paul Robinson, fyrrum markvörður Tottenham, er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Tudor.

„Þetta er sjálfselska hjá stjóranum. Hann er að reyna að bjarga eigin skinni og er ekkert að hugsa um leikmanninn sinn," sagði Robinson í útsendingu BBC.
Athugasemdir
banner