Það eru nokkrir leikir á dagskrá í Lengjubikarnum þennan miðvikudaginn.
Í Lengjubikar karla er einn leikur í A-deild þar sem Fylkir og ÍBV eigast við í Árbænum. Fylkir er á toppi riðils 4 og getur farið langt með að vinna hann með sigri í kvöld. ÍBV er með fjögur stig eftir tvo leiki og getur enn blandað sér í baráttu um sigur í riðlinum.

Svo eru nokkrir leikir í neðri deildum Lengjubikars karla og í B-deild Lengjubikars kvenna mætast Keflavík og Haukar í Reykjanesbæ. Keflavík er með sex stig og Haukar eru með þrjú stig eftir þrjá leiki í keppninni.
Lengjubikar karla:
16:30 Fylkir - ÍBV (tekk VÖLLURINN)
19:00 Árbær - KFG (Domusnovavöllurinn)
20:00 Árborg - Hafnir (JÁVERK-völlurinn)
20:00 Álafoss - Kría (Malbikstöðin að Varmá)
Lengjubikar kvenna:
19:00 Keflavík - Haukar (Nettóhöllin)
Athugasemdir