Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Árbær tapaði stórt - Auðvelt á Selfossi
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Hanna Sím
Leikjum kvöldsins í Lengjubikarnum er lokið þar sem keppt var í B- og C-deildum í karlaflokki.

Árbær tók á móti KFG í eina leiknum í B-deild og skoruðu Garðbæingar sjö mörk í stórsigri. Liðin áttust við á Domusnovavellinum í Breiðholti.

Djordje Biberdzic var atkvæðamestur með þrennu, sem hann gerði í fyrri hálfleik, á meðan Óttar Baldursson setti tvö. Leonidas Baskas skoraði fánamarkið fyrir Árbæ, lokatölur 1-7. KFG er með sex stig eftir fjórar umferðir á meðan Árbær situr eftir án stiga.

Í C-deildinni skoraði Árborg fimm mörk í auðveldum sigri gegn Höfnum. Hafnir voru með fullt hús stiga fyrir leikinn og fengu væna rasskellingu á Selfossi.

Árborg er með 6 stig eftir 3 umferðir, þremur stigum á eftir Höfnum sem sitja í öðru sæti.

Álafoss trónir á toppi riðilsins eftir sigur gegn Kríu í kvöld þar sem lokatölur urðu 5-2.

Álafoss er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

Árbær 1 - 7 KFG
0-1 Djordje Biberdzic ('2)
0-2 Djordje Biberdzic ('24)
0-3 Óttar Baldursson ('36)
0-4 Djordje Biberdzic ('43)
0-5 Baldur Ómar Jónsson ('47)
1-5 Leonidas Baskas ('58)
1-6 Björn Darri Ásmundsson ('60)
1-7 Óttar Baldursson ('73)

Árborg 5 - 0 Hafnir
1-0 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('8)
2-0 Aron Freyr Margeirsson ('42)
3-0 David Adam Dabrowski ('61)
4-0 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('63)
5-0 Andrés Karl Guðjónsson ('90)

Álafoss 5 - 2 Kría
0-1 Einar Örn Sigurðsson ('3)
1-1 Valgeir Viðar Jakobsson ('5)
2-1 Jhon Orlando Rodriguez Vergara ('15)
3-1 Davíð Ívarsson ('29)
3-2 Bjarni Rögnvaldsson ('42)
4-2 Gunnar Smári Jónsson ('8)
5-2 Karl Eggert Þórarinsson ('92)
Athugasemdir
banner
banner