Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 11:50
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið PSG og Chelsea: Funheitur Pedro
Mynd: EPA
Í kvöld halda 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar áfram. Þau hófust í gær og í kvöld eru svo fjórir leikir. Ríkjandi meistarar PSG taka á móti Chelsea.

Þetta er fyrri viðureign liðanna en hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið.

Fabian Ruiz og Quentin Ndjantou eru á meiðslalistanum en Joao Neves ætti að geta spilað.

Estevao Willian, Jamie Gittens og Levi Colwill eru á meiðslalista Chelsea. Wesley Fofana ætti að vera klár í slaginn og verður líklega með Trevoh Chalobah í miðverðinum hjá Chelsea.

Joao Pedro, sem hefur skorað 11 mörk í síðustu 12 leikjum í öllum keppnum hjá Chelsea, leiðir væntanlega sóknarlínu enska liðsins.
Athugasemdir
banner