Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 23:23
Ívan Guðjón Baldursson
Madueke um vítið: Veit ekki hvað gerðist
Mynd: EPA
Noni Madueke kom inn af bekknum og breytti leiknum þegar Arsenal rétt marði jafntefli á útivelli gegn Bayer Leverkusen í kvöld.

Liðin áttust við í 16-liða úrslitum og lauk leiknum með 1-1 jafntefli eftir að Madueke fiskaði vítaspyrnu á lokamínútunum. Seinni leikurinn fer fram á Emirates leikvanginum í næstu viku.

„Við höfum trú á sjálfum okkur, við ætlum að klára þetta einvígi í London," sagði Madueke sem var svo spurður út í vítaspyrnudóminn sem var umdeildur.

„Ég veit í raun ekki hvað gerðist, ég fann bara fyrir snertingu og datt í jörðina og fékk vítaspyrnu. Kai Havertz sýndi mikla yfirvegun að taka þessa vítaspyrnu og ég er mjög ánægður fyrir hans hönd.

„Það er alltaf gaman að skora á síðustu mínútunum til að ná jafntefli. Við vorum ekki upp á okkar besta í dag, það voru hlutir sem við hefðum getað gert betur. Við vorum ekki nógu góðir á boltanum en ég er viss um að við munum sýna gæðin okkar á heimavelli."


Madueke hefur oft komið inn af bekknum í leikjum Arsenal en afar sjaldan þegar liðið er undir.

„Þegar þú kemur inná og liðið þitt er að tapa þá gefur það þér aukinn vilja til að breyta leiknum."

   11.03.2026 19:49
Sjáðu umdeilda vítaspyrnu sem skóp jöfnunarmarkið

Athugasemdir
banner
banner
banner