Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Havertz bjargaði jafntefli gegn uppeldisfélaginu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bayer Leverkusen 1 - 1 Arsenal
1-0 Robert Andrich ('46 )
1-1 Kai Havertz ('89 , víti)

Bayer Leverkusen tók á móti Arsenal í fyrsta leik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.

Leverkusen var sterkara liðið í fyrri hálfleiknum en Arsenal fékk besta færið þegar Gabriel Martinelli skaut í slá.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og skoraði fyrirliðinn Robert Andrich með skalla eftir hornspyrnu.

Leikurinn var áfram jafn og tíðindalítill. Hann einkenndist af taktískri baráttu og var ekki að sjá neinn gæðamun á liðunum.

Noni Madueke kom inn af bekknum fyrir Bukayo Saka og átti hann eftir að skipta sköpum á lokamínútunum. Hann fór skemmtilega framhjá tveimur leikmönnum Leverkusen úti á hægri vængnum og þegar komið var inn í vítateig fiskaði hann umdeilda vítaspyrnu.

Kai Havertz, sem kom inn af bekknum í síðari hálfleik, steig á vítapunktinn og skoraði jöfnunarmarkið. Hann fagnaði þó ekki gegn uppeldisfélaginu, sem seldi hann til Chelsea sumarið 2020.

Lokatölur urðu því 1-1 eftir jafnan slag í Leverkusen og verður afar áhugavert að fylgjast með seinni leiknum á Emirates leikvanginum.
Athugasemdir
banner
banner