Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 11:12
Elvar Geir Magnússon
Saliba fór með til Þýskalands en ekki Ödegaard
Mynd: EPA
Klukkan 17:45 verður fyrri leikur Bayer Leverkusen og Arsenal í Meistaradeildinni.

Miðvörðurinn William Saliba er klár í slaginn og fór með til Þýskalands en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum Arsenal vegna ökklameiðsla.

Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard er hinsvegar ekki klár í þennan fyrri leik.

Mikel Arteta greindi frá því á fréttamannafundi í gær að Riccardo ?Calafiori og Leandro Trossard yrðu mögulega leikfærir en tekin yrði ákvörðun um þátttöku þeirra í dag.

Gabriel Magalhaes, Declan Rice og Martin Zubimendi voru hvíldir í bikarnum en eru allir klárir í slaginn. Arsenal vann Mansfield 2-1 í bikarnum og draumurinn um fernuna lifir.
Athugasemdir
banner