Fotbolti.net
11.05.26 - 14:43
Kári Snorrason

Duracell: Arsenal fyrst liða til að spila sextíu leiki

Trossard skoraði eina markið í 1-0 sigri á West Ham í gær.

Trossard skoraði eina markið í 1-0 sigri á West Ham í gær.

Canon

Mynd: EPA

Duracell
Arsenal varð í gær fyrsta liðið úr einni af fimm stærstu deildum Evrópu til að spila sextíu leiki á tímabilinu.

Liðið vann dramatískan sigur á West Ham og færðist þar með skrefi nær Englandsmeistaratitlinum.

Arsenal hefur spilað 36 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Þá komst liðið í úrslit deildarbikarsins, féll úr leik í átta liða úrslitum enska bikarsins og er komið í úrslit Meistaradeildarinnar.

Alls mun Arsenal spila 63 leiki á tímabilinu.

Fyrir það afrek hljóta lærisveinar Arteta hina virtu Duracell viðurkenningu vikunnar frá Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.