Fotbolti.net
11.05.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ég ætla að setja smá pressu á Gylfa"

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur.

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Grindavík/Njarðvík hefur komið skemmtilega inn í Bestu deildina þetta sumarið. Liðið náði í sinn fyrsta sigur gegn Þór/KA á dögunum og var óheppið að ná ekki í góð úrslit gegn Val í fyrstu umferðinni.

Fyrir tímabilið talaði Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, opinskátt um það að liðið væri með ákveðin gildi og ætlaði ekki að víkja frá þeim þrátt fyrir að vera komið upp um deild. Gylfi talaði um að stefnan væri að sundurspila liðin í Bestu deildinni en í síðasta þætti Uppbótartímans var auglýst eftir því.
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
TENGT EFNI

Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta

„Ég ætla að auglýsa eftir þessu samba, spila yfir öll hin liðin frá Grindavík/Njarðvík. Ég hef ekki enn séð það," sagði Arnar Páll Garðarsson í þættinum.

„Ef það var einhvern tímann leikur til að sýna þessa takta - þó Kaplakrikavöllur hafi verið erfiður - þá var það þessi leikur," sagði Arnar og átti við leik nýliðanna gegn FH í síðustu viku. „Leikurinn var opinn og það var hægt að gera fullt af hlutum. Mér fannst Grindvavík/Njarðvík vera mjög beinskeytt. Þær gerðu það vel líka."

„Ég ætla að setja smá pressu á Gylfa. Ég vil sjá meira samba," sagði Arnar Páll léttur.

Þess má geta að Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í Laugardalnum í kvöld.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.

Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.