Tékkneski markvörðurinn Antonín Kinský var maður leiksins í einkunnagjöf Sky Sports eftir jafntefli Tottenham gegn Leeds United í mikilvægum slag í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
Tottenham er tveimur stigum frá fallsæti eftir jafnteflið þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu. Kinský átti tvær magnaðar markvörslur til að bjarga stigi fyrir sína menn í dag.
Hann varði fyrst stórkostlega í fyrri hálfleik þegar leikmaður Leeds átti skalla af stuttu færi og svo varði hann aftur meistaralega í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar Sean Longstaff slapp í gegn. Sjáðu vörsluna á 98. mínútu
Kinský fær 8 í einkunn hjá Sky alveg eins og liðsfélagar hans Rodrigo Bentancur og Mathys Tel. Tel skoraði eina mark Tottenham í leiknum en gaf einnig vítaspyrnu frá sér á afar klaufalegan máta og var næstum búinn að gefa Leeds annað mark með galinni tilraun til að hreinsa boltann úr eigin vítateig fyrr í leiknum.
Ethan Ampadu var besti leikmaður Leeds með 8 í einkunn en flestir aðrir leikmenn vallarins fengu 7 fyrir sinn þátt.
Tottenham: Kinsky (8), Porro (7), Danso (7), Van de Ven (7), Udogie (7), Palhinha (7), Gallagher (6), Bentancur (8), Tel (8), Kolo Muani (7), Richarlison (6)
Varamenn: Maddison (7), Bergvall (7)
Leeds: Darlow (7), Rodon (7), Bijol (7), Struijk (7), Justin (7), James (7), Ampadu (8), Tanaka (7), Aaronson (7), Stach (6), Calvert-Lewin (7)
Varamenn: Gnonto (7), Nmecha (6), Bornauw (7), Longstaff (7)



