Cancelo leikur á láni hjá Barcelona frá Al-Hilal. Þetta er í annað sinn sem hann er lánaður til Barcelona á ferlinum.
Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo lék allan leikinn er Barcelona tryggði sér Spánarmeistaratitilinn annað árið í röð í gærkvöldi.
Barca lagði Real Madrid að velli í El Clásico slagnum og tryggði sér þannig titilinn þegar þrjár umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Cancelo komst í sögubækurnar með þessum sigri þar sem hann er fyrsti leikmaður sögunnar til að afreka að vinna fjórar sterkustu deildarkeppnir Evrópu og víðar.
Cancelo vann ítölsku deildina með Juventus 2019 og skipti svo yfir til Manchester City þar sem hann vann ensku deildina þrjú ár í röð.
Um mitt tímabil 2022-23 lenti Cancelo upp á kant við Pep Guardiola þjálfara Man City og var sendur á lán til FC Bayern, þar sem hann vann Þýskalandsmeistaratitilinn.
Núna er hann einnig búinn að tryggja sér spænska deildartitilinn en hann hefur aldrei leikið í franska boltanum og því ekki fengið tækifæri til að sigra Ligue 1.
Þess má þó geta að Cancelo ólst upp hjá Benfica og spilaði einn leik fyrir liðið þegar það varð Portúgalsmeistari 2014.
Cancelo hefði getað barist um sádi-arabísku deildina eftir að hann var fenginn yfir til Al-Hilal, en hann yfirgaf félagið þegar það var ekki pláss í hópnum til að skrá hann til leiks í deildarkeppnina.
„Einhver hjá Al-Hilal laug að mér. Þeir sögðu við mig að ég yrði partur af leikmannahópinum fyrir deildina en skildu mig svo eftir utan hóps. Ég ákvað að leita á ný mið og ég er mjög hamingjusamur í Barcelona. Ég vann titil hérna og fyrir mér er Barca stærsti klúbbur í heimi," sagði Cancelo við DAZN eftir lokaflautið í El Clásico.
Cancelo vill skipta alfarið yfir til Barcelona í sumar en hann er ennþá með eitt ár eftir af samningi við Al-Hilal.



