Napoli 2 - 3 Bologna
0-1 Federico Bernardeschi ('10 )
0-2 Riccardo Orsolini ('34 , víti)
1-2 Giovanni Di Lorenzo ('45+2 )
2-2 Alisson Santos ('48 )
2-3 Jonathan Rowe ('91)
0-1 Federico Bernardeschi ('10 )
0-2 Riccardo Orsolini ('34 , víti)
1-2 Giovanni Di Lorenzo ('45+2 )
2-2 Alisson Santos ('48 )
2-3 Jonathan Rowe ('91)
Napoli og Bologna áttust við í lokaleik 36. umferðar ítalska deildartímabilsins og úr varð gríðarlega skemmtilegur slagur þar sem gestirnir komust óvænt í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.
Federico Bernardeschi náði forystunni með frábæru skoti úr vítateignum áður en Riccardo Orsolini tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot hjá fyrirliðanum Giovanni Di Lorenzo.
Di Lorenzo lét fyrirgefa sér mistökin þegar hann minnkaði muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks, svo staðan var 2-1 í leikhlé.
Alisson Santos byrjaði seinni hálfleikinn á að gera jöfnunarmark eftir sendingu frá Rasmus Höjlund og ríkti mikið jafnræði með liðunum út leikinn.
Jonathan Rowe kom inn af bekknum í síðari hálfleik og skoraði sigurmarkið fyrir Bologna í uppbótartíma. Rowe skoraði með laglegri klippu þegar hann fylgdi marktilraun Juan Miranda eftir með marki.
Lokatölur 2-3 fyrir Bologna eftir þennan skemmtilega slag. Liðið siglir lygnan sjó í áttunda sæti Serie A deildarinnar, sex stigum frá mögulegu sæti í Sambandsdeildinni þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
Napoli er áfram í öðru sæti en Juventus, Milan og Roma eru skammt undan. Napoli þarf að gæta sín ef liðið vill ekki missa óvænt af sæti í Meistaradeildinni.

