Fotbolti.net
11.05.26 - 21:01
Alexander Tonini

Margrét Brynja orðlaus: Gáfum allt í þetta og getum gengið stoltar af velli

Auglýsing
Margrét Brynja Kristinsdóttir er leikmaður af gamla skólanum

Margrét Brynja Kristinsdóttir er leikmaður af gamla skólanum

Canon

Mynd: Valur

Hertz
Margrét Brynja Kristinsdóttir er uppalin Bliki og því eflaust mjög sætt að hafa skorað bæði mörk Vals í kvöld. Lengi vel leit það út fyrir að duga til sigurs en meistaraheppnin var með Blikum í kvöld og endaði leikurinn 3-2 Blikum í vil.

Þrátt fyrir úrslitin átti Margrét stórleik og ekki bara mörkin sem hún skoraði heldur líka vinnusemi og baráttu á miðjunni.

Hvernig er hennar upplifun að leikslokum?

„Við gáfum allt í þetta og ég veit ekki hvað ég á að segja. En við getum alla veganna verið stolltar af okkur og auðvitað er hægt að benda á eitt og eitt."
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Valur
Margrét Brynja var án efa maður leiksins hér í kvöld og fékk ágætis tækifæri til að skora þrennu á 89. mínútu leiks og komið Val í 3-1 sem hefði sennilega dugað til sigurs.

Hún vann boltann á vinstri kantinum og keyrði inn í teig en færið var erfitt og þröngt.

„Ég var komin út á enda og hefði kannski átt að senda hann út í teig."

Margrét var óheppin með meiðsli í fyrra, en hvernig er skrokkurinn í ár?

„Hann er fínn, meiddist smá í ökkla sem var óheppni á undirbúningstímabilinu. En ég er bara að detta inn í mitt besta form núna."

Umræðan í fjölmiðlum hefur ekki endilega verið jákvæð og fréttir um að Valskonur séu litlar í sér. En Margrét var svo sannarlega ekki lítil í sér í dag. Hún var hörð í horn að taka og lét svo sannarlega finna vel fyrir sér, minnti smá á enska boltann fyrir 30 árum síðan.

Er Margrét þannig leikmaður?

„Jú ætli það ekki bara, það má kannski segja það."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.