Fotbolti.net
11.05.26 - 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Rashford: Yrði áfram hérna ef ég væri galdramaður

Rashford: Yrði áfram hérna ef ég væri galdramaður
Canon

Mynd: EPA

Marcus Rashford var í byrjunarliði Barcelona og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-0 sigri gegn Real Madrid í El Clásico í gærkvöldi til að hjálpa Börsungum að tryggja sér Spánarmeistaratitilinn annað árið í röð.
Rashford hefur verið í stuði á láni hjá Barcelona á tímabilinu þar sem hann hefur komið með beinum hætti að 28 mörkum í 47 leikjum.

„Ég kom hingað til að sigra og er mjög ánægður með þennan titil," sagði Rashford við BBC eftir lokaflautið í El Clásico og var svo spurður út í framtíðina.

Lánssamningur Rashford rennur út í sumar en Börsungar hafa tækifæri til að nýta kaupákvæði í samningnum. Þeir geta fest kaup á Rashford fyrir svo lítið sem 30 milljónir evra.

„Ég er ekki galdramaður.... en ef ég væri það þá myndi ég vera áfram hjá Barcelona. Við verðum að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

„Þetta Barcelona lið er stórkostlegt og ég er sannfærður um að það mun vinna marga titla á næstu árum. Það væri æðislegt að fá að vera hérna áfram."


Sjáðu mörkin: Magnað aukaspyrnumark Rashford í El Clasico
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Magnað aukaspyrnumark Rashford í El Clasico

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.