Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mán 11. júní 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Birkir Már: Hefur tekist á móti fullt af góðum leikmönnum
Icelandair
Birkir Már á æfingu í morgun.
Birkir Már á æfingu í morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spennan er að byggjast upp hægt og rólega. Maður er slakur ennþá en spennan kemur í vikunni," sagði hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson fyrir æfingu íslenska landsliðsins í dag en fimm leikir eru í að liðið mæti Argentínu í fyrsta leik á HM.

Birkir mun meðal annars eiga í höggi við Lionel Messi í leiknum á laugardag.

„Mér finnst geggjað að spila á sama velli og Messi. Þegar maður kemur inn á völlinn verður maður að gleyma því hverjir eru hinumegin og fara í leikinn til að vinna hann."

Birkir hefur áður mætt mörgum af öflugustu leikmönnum heims í leikjum með landsliðinu.

„Liðið þarf að gera þetta saman. Við höfum gert það á móti fullt af góðum leikmönnum og það hefur yfirleitt tekist. Ég sé enga ástæðu til að breyta því á laugardaginn."

Birkir spilaði ekki gegn Gana á fimmtudaginn vegna smávægilegra meiðsla en hann æfði í gær án vandræða og er klár í slaginn.

„Ég vildi spila til að fá fleiri mínútur með landsliðinu en ég vildi ekki togna og verða frá í fjórar vikur. Þess vegna sleppti ég þessum leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner