Fotbolti.net
17.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Mögnuð endurkoma Augnabliks gegn lánlausu Álftanesliði

Augnablik vann geggjaðan endurkomusigur á Álftanesi

Augnablik vann geggjaðan endurkomusigur á Álftanesi

Canon

Mynd: Aðsend

Kvennaboltinn
Augnablik 3 - 2 Álftanes
0-1 Helga Kristinsdóttir ('53 )
1-1 Ólöf Inga Pálsdóttir ('78 )
1-2 Sara Freysdóttir ('83 )
2-2 Elísabet Gunnarsdóttir ('87 )
3-2 Júlía Heiðrós Halldórsdóttir ('90 )
Augnablik vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Álftanesi í 2. deild kvenna í Fífunni í gær.

Álftnesingar komus tvisvar í forystu í leiknum. Helga Kristinsdóttir skoraði á 53. mínútu áður en Ólöf Inga Pálsdóttir jafnaði á 78. mínútu og þá kom Sara Freysdóttir gestunum aftur yfir fimm mínútum síðar.

Þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Elísabet Gunnarsdóttir jöfnunarmark Augnabliks áður en Júlía Heiðrós Halldórsdóttir gerði sigurmarkið í uppbótartíma.

Magnaður sigur hjá Augnabliki sem er í 7. sæti með 13 stig en Álftanes í næst neðsta sæti með 2 stig og ekki enn unnið leik eftir tíu umferðir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fjölnir11+4628
2Einherji11+5227
3Vestri11+3927
4Fylkir11+6326
5Afturelding11+2322
6Augnablik11-1516
7Dalvík/Reynir11-1314
811-1813
9KFR11-428
10ÍR11-185
11Álftanes11-362
12Smári11-811
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.