Fotbolti.net
16.07.26 - 22:34
Brynjar Ingi Erluson

Klásúla í samningi Rashford er runnin út

Marcus Rashford

Marcus Rashford

Canon

Mynd: EPA

Klásúla í samningi enska sóknarmannsins Marcus Rashford við Manchester United er runnin út. Félög sem vilja festa kaup á honum þurfa því héðan í frá að semja beint við United um kaupverðið.
Rashford, sem er 28 ára, var með 40 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum við Man Utd.

Hann var á láni hjá Spánarmeisturum Barcelona á síðasta tímabili og stóð sig vel. Börsungar gátu gert félagaskiptin varanleg fyrir 26 milljónir punda en ákváðu að nýta ekki kaupákvæðið og fékk Anthony Gordon þess í stað frá Newcastle United.

Önnur félög en Liverpool og Manchester City gátu einnig komist hjá viðræðum við Man Utd og keypt Rashford fyrir 40 milljónir punda. Það ákvæði er hins vegar nú runnið út.

Eins og staðan er mun Rashford snúa aftur til æfinga hjá United þegar fríi hans eftir heimsmeistaramótið lýkur.

Félög í Tyrklandi hafa sýnt honum áhuga en sá áhugi er ekki gagnkvæmur. Samkvæmt heimildum Athletic hefur Rashford þegar hafnað tilboðum sem hefðu tryggt honum hærri laun en hann fær hjá United.

Rashford er uppalinn hjá Man Utd og hefur skorað 138 mörk í yfir 400 leikjum fyrir félagið. Hann hefur þó ekki leikið með aðalliðinu síðan í desember 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.