Ísland vann 3-2 sigur á Írlandi í æfingaleik í kvöld. Ísland átti mjög góðan fyrri hálfleik og leiddi 3-0 í hálfleik. Ísland lék með vindi og átti marga flotta spilkafla.
Þeim fækkaði á móti vindi í seinni hálfeik og unnu Írar seinni hálfleikinn 0-2. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 2 Írland
Þeim fækkaði á móti vindi í seinni hálfeik og unnu Írar seinni hálfleikinn 0-2. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 2 Írland
Varstu sáttur við leikinn?
„Ég var sáttur við fyrri hálfleikinn að mörgu leyti, við byrjuðum illa fannst mér í seinni hálfleik, vorum 'sloppy' fyrstu mínúturnar og svo náðum við aðeins að vinna okkur inn í leikinn og spiluðum ágætlega í 20-25 mínútur kannski og svo var síðasta korterið mjög dapurt heilt yfir. Vorum kannski alveg nógu beitt í pressunni í seinni hálfleik," sagði Steini.
Það var talsverður vindur á annað markið, hafði það mikil áhrif?
„Það var ekkert að hjálpa að spila á móti vindinum. Það er hægt að gefa sér það ef maður horfir á leikinn að það hafi verið auðveldara að spila með vindi heldur en á móti eins og liðin voru að spila í leiknum.“
Leið leikmönnum of vel með stöðuna 3-0 í hálfleik?
„Ef það hefur verið þá höfum við lært af þessu núna. Æfingaleikir eru lærdómur og við ef það er tilfellið þá getum við farið í það og nýtt okkur þann lærdóm í framtíðinni, það er jákvætt. Maður er kannski smá pirraður eftir að hafa fengið á sig mark á síðustu mínútun, gat eiginlega ekki fagnað eftir leik. Við verðum að vera klár í 90 mínútur og byrja seinni hálfleik af fullum krafti. Þú fagnar ekki í hálfleik, þú fagnar eftir leik," sagði Steini.
Athugasemdir