Fotbolti.net
11.07.15 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Giampolo Pazzini verður liðsfélagi Emils Hallfreðs (Staðfest)

Giampolo Pazzini

Giampolo Pazzini

Canon

Mynd: Getty Images

Giampolo Pazzini hefur staðfest það að hann muni ganga til liðs við Hellas Verona, eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá AC Milan.

Pazzini tilkynnti þetta sjálfur á Facebook aðgangi sínum.
\"Í dag byrjar nýtt og spennandi verkefni. Ég er mjög ánægður og spenntur. Mér hlakkar til að byrja nýtt tímabil með liði sem að trúir á mig,\" sagði Pazzini.

\"´Ég vil einnig þakka öllum hjá AC Milan fyrir síðustu þrjú tímabil, Knús á ykkur öll!

Þessi 30 ára gamli sóknarmaður hefur skorað meira en 100 mörk í Seríu A og mun því verða góð viðbót við lið Hellas Verona

Heimild: Daily Mail

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.