Fotbolti.net
11.07.15 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John Guidetti til Celta Vigo (Staðfest)

John Guidetti er nýjasti leikmaður Celta Vigo

John Guidetti er nýjasti leikmaður Celta Vigo

Canon

Mynd: Twitter

Sænski sóknarmaðurinn, John Guidetti, er genginn til liðs við Celta Vigo á Spáni.

Guidetti, sem var á síðasta tímabili á láni hjá Celti, skrifaði undir fimm ára samning við spænska félagið.
\"Sænski sóknarmaðurinn, John Guidetti, hefur samið við það spennandi verkefni, sem Celta er. Leikmaðurinn samdi til fimm ára og verður kynntur á sunnudaginn,\" segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Guidetti gekk til liðs við Man City árið 2008, en náði aldrei að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið þar og var því oftast lánaður burt frá félaginu.

Hann fékk ekki nýjan samning hjá City eftir síðasta tímabil og fer því á frjálsri sölu til Celta.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.