Fotbolti.net
11.07.15 - 19:11
Magnús Már Einarsson

Matteo Darmian til Manchester United (Staðfest)

Matteo Darmian til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Manchester United

Manchester United hefur keypt varnarmanninn Matteo Darmian frá Torinio á ítalíu.

Hinn 25 ára gamli Darmian skrifaði undir fjögurra ára samning við Manchester United í dag.

„Það er draumur að rætast með því að fara til Manchester United,\" sagði Darmian.
„Ég elskaði tímann hjá Torino og ég vil þakka félaginu og stuðningsmönnunum fyrir allt.\"

„Ég er viss um að þeir skilja að ég þurfti að grípa tækifærið þegar mér bauðst að spila með stærsta liði í heimi.\"

Matteo er ítalskur landsliðsmaður en hann getur spilað allar stöður í vörninni. Oftast er hann þó hægri bakvörður.

„Matteo er góð viðbót við liðið. Ég er ánægður með að bjóða Matteo velkominn til félagsins og hlakka til að vinna með honum næstu dagana,\" sagði Louis van Gaal stjóri Manchester United.

Van Gaal er að styrkja hópinn fyrir komandi tímabil en eins og kom fram í dag þá er Bastian Schweinsteiger á leið til félagsins frá FC Bayern.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.