Fotbolti.net
11.07.15 - 10:11
Elvar Geir Magnússon

Wijnaldum til Newcastle (Staðfest)

Wijnaldum var fyrirliði PSV sem varð hollenskur meistari síðasta tímabil.

Wijnaldum var fyrirliði PSV sem varð hollenskur meistari síðasta tímabil.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt miðjumanninn Georginio Wijnaldum frá PSV Eindhoven en þessi 24 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Newcastle síðan Steve McClaren tók við stjórn liðsins.
Kaupverðið er 14,5 milljónir punda en það er hæsta upphæð sem Newcastle hefur greitt fyrir leikmann á þeim átta árum sem Mike Ashley hefur átt félagið.

Wijnaldum fæddist í Rotterdam en hann er sóknarmiðjumaður sem hefur verið hjá PSV síðan 2011 en þar áður var hann hjá Feyenoord.

Hann á 13 landsleiki að baki fyrir Holland og skoraði þriðja mark síns liðs í 3-0 sigrinum gegn Brasilíu í bronsleiknum á HM í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.