Jimenez yfirgefur Bournemouth og verður liðsfélagi Alberts

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Alex Jimenez er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth en hann er að ganga í raðir Fiorentina á Ítalíu.

TENGT EFNI
Jimenez utan hóps vegna meintra skilaboða til ólögráða stúlku
Þessi 21 árs gamli bakvörður átti gott tímabil með Bournemouth á síðustu leiktíð, en var tekinn úr hópnum fyrir síðustu þrjá deildarleikina.
Hann var til rannsóknar hjá Bournemouth eftir að skjáskot af skilaboðum hans til ólögráða stúlku fóru í dreifingu á netinu. Félagið ákvað því að taka hann úr hópnum á meðan málið var til skoðunar.
Jimenez er nú á förum frá Bournemouth og mun ganga í raðir Fiorentina á láni út tímabilið. Ítalska félagið verður með 20 milljóna evra kauprétt á leikmanninum.
Spánverjinn hefur þegar farið í fyrri hluta læknisskoðunarinnar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er á mála hjá Fiorentina.