Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. ágúst 2017 11:22
Magnús Már Einarsson
Sky: Coutinho óskar eftir sölu frá Liverpool
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho hefur óskað eftir sölu frá Liverpool. Sky Sports greindi frá þessu nú rétt í þessu.

Liverpool hefur nú þegar hafnað tveimur tilboðum í Coutinho frá Barcelona.

Í morgun sendi Liverpool síðan frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að félagið myndi ekki skoða nein tilboð í Brasilíumanninn og að hann yrði áfram hjá Liverpool.

Coutinho vill hins vegar sjálfur fara til Barcelona og hann hefur nú óskað eftir sölu.

Coutinho verður ekki með Liverpool gegn Watford í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun en félagið sagði fyrr í dag að ástæða þess sé bakmeiðsli.
Athugasemdir
banner
banner