Vatnspásur verða teknar upp í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar um helgina vegna hitans sem er á Bretlandseyjum.
Það er spáð steikjandi hita um helgina og talið að hitastigið fari vel yfir 30 gráðurnar, gæti jafnvel farið allt upp í 37 gráður.
Það er spáð steikjandi hita um helgina og talið að hitastigið fari vel yfir 30 gráðurnar, gæti jafnvel farið allt upp í 37 gráður.
Vatnspásur voru í leik West Ham og Manchester City um síðustu helgi og einnig í nokkrum deildabikarleikjum í vikunni.
Vatnspásur voru fyrst teknar upp á Englandi í Covid-19 heimsfaraldrinum.
Athugasemdir