Tryggvi Guðmundsson fyrrum markamaskína er nokkuð brattur fyrir leik Íslands og Belgíu sem hefst á Laugardalsvelli klukkan 18:45. Tryggvi Guðmundsson fór yfir það helsta í sambandi við byrjunarliðið.
„Mér líst bara vel á þetta. Alveg sama hvernig byrjunarliðið er þá þurfum við að þurfum við að bæta upp fyrir slysið í Sviss."
„Það er gott að fá Emil inn sem er sterkur þegar hann er sterkur og það er gaman að sjá Rúnar vera að fá sinn fyrsta leik."
„Ég trú ekki öðru en að strákarnir vilja sína þjóðinni að þetta hafi bara verið slys í Sviss."
Spjallið við Tryggva má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir