Hinn 19 ára gamli Jadon Sancho var í skýjunum með 5-3 sigur Englands á Kósóvó í gær en hann skoraði sjálfur tvö mörk í leiknum.
Sancho var að spila áttunda landsleik sinn í gær en hann skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks.
Hann komst þar í sögubækurnar en hann er fyrsti leikmaðurinn sem er fæddur á þessari öld til að skora fyrir England og þá er hann yngsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk í sama leiknum og bætti þar með met Wayne Rooney frá 2004.
Hann var ánægður eftir leik og tileinkaði ömmu sinni sigurinn en hún lést á síðasta ári.
„Þetta er afar þýðingarmikið fyrir mig og fjölskyldu mína. Þetta er sérstakur dagur. Ég vil tileinka mörkin ömmu minni sem lést á síðasta ári en hún var stærsti aðdáandinn minn," sagði Sancho við ITV.
Athugasemdir