Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður FH, lenti í harkalegu samstuði við mótherja í bikarleiknum gegn Stjörnunni í gær.
Sóknarleikmaðurinn ungi var borinn af velli á börum og svo fluttur með sjúkrabíl í skoðun á sjúkrahúsi.
Sóknarleikmaðurinn ungi var borinn af velli á börum og svo fluttur með sjúkrabíl í skoðun á sjúkrahúsi.
„Þetta var auðvitað algjört óviljaverk og ég sá hann bara ekki koma. Ég fékk þarna líklegast smá heilahristing," segir Jónatan við Fótbolta.net.
„Ég fór síðan upp á spítala í skoðun og kom vel út úr því. Ég hef það bara fínt í dag! En næstu dagar leiða meira í ljós hvernig ég hef það."
FH vann 3-0 sigur í gær og mun Hafnarfjarðarliðið leika gegn ÍBV í undanúrslitum.
Það er mikið leikjaálag framundan hjá FH og vonandi snýr Jónatan aftur út á völlinn sem fyrst.
Á sunnudag leikur liðið stórleik gegn Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir