11.09.26 - 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Linda Líf meiddist illa - „Hefði getað farið miklu verr"

Mynd: Charlton

Mynd: Charlton

Linda Líf Boama gekk til liðs við Charlton frá Kristianstad á dögunum en hún þarf að bíða eftir því að spila sinn fyrsta leik fyrir enska félagið.
Charlton greindi frá því í dag að hún hafi meiðst illa á hné á æfingu og hefur gengist undir aðgerð. Búist er við að hún verði frá næstu mánuðina.

„Ég var mjög heppin þar sem þetta hefði getað farið miklu verr. Þetta eru meiðsli sem við munum takast á við með þolinmæði og ákveðni og ég gæti ekki verið í betri höndum," skrifaði Linda Líf á Instagram síðu sína.
„Ég vil þakka öllum hjá Charlton fyrir skjót viðbrögð, huggun og umhyggju. Það er auðveldara að vera jákvæð og halda áfram að brosa með þessu frábæra fólki, stelpunum og starfsfólkinu. Og auðvitað vil ég þakka mömmu fyrir að hafa flogið strax út."