11.10.26 - 13:16
Brynjar Ingi Erluson
Nefnir vanmetnasta leikmann Arsenal

Mikel Merino

Mynd: EPA

Mikel Merino

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Mikel Merino er mjög vanmetinn leikmaður en þetta sagði Myles Lewis-Skelly, samherji hans hjá Arsenal, í viðtali við ensku úrvalsdeildina.
Merino er ekki í stóru hlutverki hjá Arsenal, en hann hefur yfirleitt gert mjög vel þegar Mikel Arteta hefur þurft á honum að halda.
Spánverjinn kom frá Real Sociedad árið 2024 og afar fjölhæfur, en hann getur leyst bæði varnarsinnað hlutverk og þá á hann það til að vera mikil ógn í teignum.
Lewis-Skelly vill læra meira af heimsmeistaranum.
„Mér finnst hann ekki fá það hrós sem hann á skilið. Bara hvernig hann sér fótboltann er eitthvað sem er gott fyrir mig að læra. Hann verðskuldar mikið hrós.“
„Í dag var ég meira að segja að ræða við hann um hvernig hann skorar svona mörg mörk. Ég vil læra því ég vil bæta því við minn leik. Þessi þrá að skora, koma sér í stöðurnar og hvar maður á að staðsetja sig á vellinum. Mér finnst eins og hann viti alltaf hvar og hvenær hann á að vera mættur í þessar stöður. Það er rosalegur kostur að hafa sem fótboltamaður,“ sagði Lewis-Skelly.