Fotbolti.net
11.10.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í enska: Goðsögn snýr aftur á Selhurst Park

Glasner fer á sinn gamla heimavöll

Glasner fer á sinn gamla heimavöll

Canon

Mynd: EPA

Tveir leikir fara fram í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 13:00 í dag.
Oliver Glasner snýr aftur á Selhurst Park þegar Nottingham Forest heimsækir Crystal Palace.

Glasner komst í guðatölu hjá stuðningsmönnum Palace eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í enska bikarnum árið 2025 og Sambandsdeildinni í vor. Hann hætti síðan hjá félaginu og tók við Forest.

Hann gerir eina breytingu á liði sínu og kemur Ola Aina inn fyrir Jair Cunha. Ein breyting er einnig hjá Palace þar sem Jefferson Lerma tekur sæti Takehiro Tomiyasu.

Á sama tíma tekur Hull á móti Everton. Nýliðarnir hafa byrjað vel og eru með átta stig eftir fimm leiki, einu minna en gestirnir.

David Moyes gerir eina breytingu á liði Everton og kemur Ainsley Maitland-Niles inn fyrir Vitali Mykolenko. Hjá Hull eru breytingarnar tvær en Joe Gelhardt og Nobel Mendy taka sæti Mohamed Belloumi og Lucas Herrington.

Crystal Palace: Benítez, Khalaili, Lerma, Richards, Canvot, Mitchell, Wharton, Timber, Pina, Kamada, Strand Larsen.

Nottingham Forest: Sels, Williams, Diomande, Murillo, Aina, Munoz, Gibbs-White, Schlager, McAtee, Ndoye, Delap.



Hull City: Tzolakis, Coyle, Egan, Ajayi, Mendy, Giles, Slater, Crooks, Gelhardt, McBurnie, Thomas.

Everton: Pickford, Maitland-Niles, Tarkowski, Keane, Branthwaite, Garner, Armstrong, Dewsbury-Hall, Grealish, Johnson, Barry.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Chelsea6+210
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Ipswich Town6-39
10Hull City5+28
11Newcastle508
12Man Utd606
13Nott. Forest5-15
14Aston Villa6-55
15Crystal Palace5-54
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.