Fotbolti.net
11.10.26 - 10:08
Brynjar Ingi Erluson

Í fyrsta sinn í 27 ár

Bukayo Saka var einn af sex enskum útileikmönnum Arsenal til að byrja leikinn

Bukayo Saka var einn af sex enskum útileikmönnum Arsenal til að byrja leikinn

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal fögnuðu 2-1 endurkomusigri á Leeds í ensku úrvalsdeildinni í gær.
England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds
TENGT EFNI

England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds

Arsenal náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik og byrjaði þann síðari illa. Mark Leeds vakti meistarana hins vegar til lífsins og þeir sýndu karakter með því að snúa leiknum sér í vil.

Þetta var fimmti deildarsigur Arsenal á tímabilinu og liðið er nú jafnt Manchester City að stigum á toppnum.

Leikurinn var líka merkilegur fyrir þær sakir að Arsenal tefldi fram sex enskum útileikmönnum í byrjunarliðinu í fyrsta sinn á þessari öld. Ben White, Myles Lewis-Skelly, Declan Rice, Noni Madueke, Ezri Konsa og Bukayo Saka byrjuðu allir.

Það hafði ekki gerst síðan gegn Manchester United í febrúar 1999. Þá voru Lee Dixon, Nigel Winterburn, Steve Bould, Tony Adams, Ray Parlour og Stephen Hughes í byrjunarliðinu.

Leeds var hins vegar nálægt því að binda enda á langa bið eftir sigri á Arsenal en liðið hefur ekki unnið Lundúnaliðið síðan 2003.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.