Fotbolti.net
10.10.26 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carrick: Baulið særir mikið

Carrick: Baulið særir mikið
Canon

Mynd: EPA

Tottenham var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik þegar liðið gerði jafntefli gegn Man Utd á Old Trafford í kvöld. Þá náði Tottenham að jafna metin undir lokin manni færri.

Stuðningsmenn Man Utd voru ekki sáttir með frammistöðu liðsins og bauluðu bæði í hálfleik og í leikslok.
„Það er ekki gaman, þetta særir mikið því mér þykir vænt um félagið. Ég skil svekkelsið, svona er raunveruleikinn, við þurfum að fara vinna leiki," sagði Michael Carrick.

„Strákarnir komu sér inn í leikinn og mér fannst við betri í öllu í seinni hálfleik. Við hefðum átt að klára þetta miðað við þá stöðu sem við vorum komnir í. Við höfum fengið á okkur tvö svona mörk sem hafa sært okkur og þetta lítur allt öðruvísi út."

„Það er ekki skortur á sjálfstrausti en leikurinn getur farið fljótt frá þer. Við fundum leið aftur inn í hann og komumst í frábæra stöðu. Það er ein af mestu vonbrigðunum," sagði Carrick að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.