Fotbolti.net
11.10.26 - 09:13
Brynjar Ingi Erluson

Bayern fundar aftur með JJ Gabriel - Kounde til Liverpool?

Bayern hefur mikinn áhuga á JJ Gabriel

Bayern hefur mikinn áhuga á JJ Gabriel

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Powerade
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins en hann er stuttur og laggóður í þetta sinn.
Alex Scott (23), miðjumaður Bournemouth, er á óskalista AC Milan þótt verðmiðinn á honum fari hækkandi. (TuttoMercatoWeb)

Bayern München hefur aftur fundað með JJ Gabriel (16), leikmanni Manchester United, en hefur ekki gert honum tilboð. Bæjarar telja hann frekar vilja fara til Spánar, þar sem Barcelona og Real Madrid hafa mikinn áhuga. (Sky Sports)

Porto hefur hækkað riftunarákvæðið í samningi brasilíska vængmannsins William Gomes (20) í 100 milljónir evra. Hann hefur verið orðaður við Liverpool. (A Bola)

Liverpool hefur einnig áhuga á franska varnarmanninum Jules Kounde en Barcelona er sagt vilja fá 60 milljónir punda fyrir hann. (Fichajes)

Chelsea hefur enn augastað á Lamine Camara (22), senegalska miðjumanninum hjá Mónakó. Félagið reyndi við hann í sumar en var ekki tilbúið að greiða þær 59 milljónir punda sem Mónakó vildi fá. (Goal)

Manchester City hefur haft samband við Borussia Dortmund vegna bandaríska sóknarmannsins Mathis Albert (17). (Goal)
Kounde til Liverpool?

Kounde til Liverpool?

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.