Framherji Newcastle, Allan Saint-Maximin, verður frá í mánuð vegna meiðsla. Hann meiddist aftan í læri í sigri Newcastle á Southampton á sunnudaginn síðastliðinn.
Frakkinn þurfti á hækjum að halda þegar hann yfirgaf völlinn á sjöttu mínútu uppbótartíma.
Newcastle á sex leiki á næstu þremur vikum og mun Maximin missa af þeim öllum ásamt mögulega fleiri leikjum.
Frakkinn þurfti á hækjum að halda þegar hann yfirgaf völlinn á sjöttu mínútu uppbótartíma.
Newcastle á sex leiki á næstu þremur vikum og mun Maximin missa af þeim öllum ásamt mögulega fleiri leikjum.
Á sunnudaginn sagði Steve Bruce eftir leik að hann myndi „sparka í sjálfan sig ef hann (Saint-Maximin) yrði lengi frá."
Athugasemdir