Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 11. desember 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Dyche reiknar með að stærra félag kaupi McNeil
Sean Dyche, stjóri Burnley, reiknar með því að félagið eigi eftir að selja kantmanninn Dwight McNeil í stærra félag í framtíðinni. Hinn tvítugi McNeil kom inn í aðallið Burnley á síðasta tímabili en hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.

„Við vitum að Dwight er leikmaður sem mun klárlega fara fram úr okkur, en á jákvæðan hátt," sagði Dyche.

„Við viljum ekki endilega missa góða leikmenn en á endanum munu einhverjir leikmenn vaxa og stærri félög koma þá og kaupa þá vegna hæfileika þeirra."

„Dwight er klárlega með mikla hæfileika. Hann er að spila og standa sig vel í hverri viku."

„Ef hann heldur sér á jörðinni og heldur vinnuseminni, sem ég er viss um að hann gerir, þá munu hæfileikar hans koma áfram í ljós. Við erum ekki það barnalegir að halda að það muni enginn taka eftir því."

Athugasemdir