fös 11. desember 2020 13:43
Magnús Már Einarsson
Hólmfríður aftur í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður Magnúsdóttir hefur samið við knattspyrnudeild Selfoss út næsta keppnistímabil. Hún er því komin aftur á Selfoss eftir stutta dvöl í Noregi í haust.

Fríða kom til Selfoss fyrir tímabilið 2019 en í september síðastliðnum sneri hún aftur í atvinnumennskuna og samdi við Avaldsnes í Noregi.

Hún spilaði sjö leiki fyrir Avaldsnes og skoraði 1 mark en liðið endaði í 3. sæti úrvalsdeildarinnar.

„Ég er þakklát fyrir tækifærið sem ég fékk í Noregi og það var gaman að spila aftur fyrir Avaldsnes. En nú er ég komin heim og hlakka til að klæðast Selfosstreyjunni á nýjan leik. Það er spennandi tímabil framundan eftir mjög sérstakt knattspyrnusumar 2020," segir Hólmfríður.

Hólmfríður hefur spilað 32 leiki fyrir Selfoss síðan 2019 og skorað í þeim 13 mörk. Hún er ein leikreyndasta landsliðskona Íslands frá upphafi og var síðast valin í landsliðshópinn gegn Svíþjóð í október síðastliðnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner