Fotbolti.net
12.01.25 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

West Ham hafnar tilboði Mónakó í Alvarez

West Ham hafnar tilboði Mónakó í Alvarez
Canon

Mynd: EPA

West Ham United hefur hafnað lánstilboði frá Mónakó í mexíkóska miðjumanninn Edson Alvarez.
Mónakó lagði fram tilboðið í dag og hafnaði West Ham því um leið en enska félagið lítur á hann sem mikilvægan leikmann.

Alvarez er 27 ára gamall og kom frá Ajax fyrir tveimur árum en hann hefur spilað mikilvæga rullu í enska liðinu.

Samkvæmt Fabrizio Romano er Mónakó að vonast til þess að geta fengið Alvarez á láni út tímabilið.

Viðræður munu halda áfram næstu daga en Mónakó vill fá Alvarez í stað Eliot Matazo sem er sagður á förum frá félaginu í þessum glugga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.