26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Valdi Þýskaland framyfir Marokkó: Klopp yfir sig hrifinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jürgen Klopp nýr landsliðsþjálfari Þýskalands er yfir sig hrifinn af Younes Ebnoutalib sem spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Þjóðverja á fimmtudag.

TENGT EFNI
Wirtz kemur fyrr inn í þýska hópinn út af meiðslum
Ebnoutalib er 23 ára framherji sem hefur verið að gera frábæra hluti að undanförnu. Hann lék í neðri deildum á Þýskalandi og Ítalíu þar til hann sprakk út með Elversberg í næstefstu deild í fyrra.
Eintracht Frankfurt krækti í hann úr röðum Elversberg og hefur Ebnoutalib farið gríðarlega vel af stað með sínu nýja félagi. Hann er kominn með 5 mörk og 2 stoðsendingar í 5 fyrstu leikjum tímabilsins.
Ebnoutalib er ættaður frá Marokkó en fæddur í Þýskalandi. Marokkóska landsliðið hefur verið að fylgjast með honum og var hann partur af U15 landsliðinu fyrir tæpum áratugi en hefur ekki komið við sögu síðan.
„Við höfum verið að fylgjast með honum frá því á síðustu leiktíð og við höfðum áhuga á að nýta okkur krafta hans. Við fórum að horfa á hann spila og ég átti samtal við hann þar sem ég útskýrði fyrir honum landsliðsverkefnið í Marokkó, án þess að gefa nein loforð. Hann hefði verðskuldað að spila fyrir Marokkó en hann valdi Þýskaland og málinu er þar með lokið," segir Mohamed Ouahbi, landsliðsþjálfari Marokkó sem er í 5. sæti á heimslista FIFA. Þýskaland er í 12. sæti á listanum.
Ebnoutalib sagði já þegar Klopp hringdi og var hann fyrstur inn af bekknum í 1-1 jafntefli gegn Hollandi í Þjóðadeildinni fyrir helgi. Hann kom inn á 30. mínútu þegar Kai Havertz þurfti að fara útaf meiddur.
„Ég horfði á fyrsta leikinn hans með Eintracht Frankfurt og sagði við sjálfan mig: 'Þvílíkur leikmaður! Hvar ætli þeir hafi fundið hann?'. Við í þjálfarateyminu þurftum ekki einu sinni að ræða saman, við vorum allir sammála um að þessi leikmaður yrði að vera valinn í landsliðið," segir Klopp.
„Hann er ótrúlega gáfaður leikmaður og þá sérstaklega á síðasta vallarþriðjunginum. Hann er einstaklega góður að spila gegn rangstöðugildrum og er virkilega hæfileikaríkur."