26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Huijsen: Tapið er mér að kenna

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Real Madrid

Mynd: EPA
Miðvörðurinn ungi Dean Huijsen svaraði spurningum á fjölmiðlafundi spænska landsliðsins fyrir stórleik kvöldsins gegn Englandi.

TENGT EFNI
Real Madrid vill nýjan forseta í La Liga
Huijsen, sem leikur með risaveldi Real Madrid, var spurður út í Madrídarslaginn sem fór fram um síðustu helgi. Varnarmaðurinn fékk beint rautt spjald fyrir brot innan vítateigs sem aftasti maður og náði Atlético Madrid forystunni með marki úr vítaspyrnu. Huijsen fékk tvöfalda refsingu, víti og rautt spjald, útaf því að hann reyndi ekki við boltann heldur fór hann bara í manninn.
Tíu leikmenn Real börðust en tókst ekki að koma í veg fyrir 2-1 tap.
„Að mínu mati þá er tapið í Madrídarslagnum mér að kenna, þetta er á minni ábyrgð. Við hefðum getað unnið þennan leik," sagði Huijsen og svaraði svo spurningu um dómgæslu leiksins sem var afar harðlega gagnrýnd af Real madrid.
„Ef við myndum snúa öllu því sem gerðist í þessum leik við þá hefði allt orðið brjálað. Ég er sannfærður um það."