Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. febrúar 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Iniesta gaf tvær frábærar stoðsendingar í frumraun sinni
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta, fyrrum leikmaður Barcelona, leikur í dag með Vissel Kobe í Japan. Hann lék í dag sinn fyrsta leik í asísku Meistaradeildinni og tók Kobe á móti Johor frá Malasíu í dag.

Heimamenn í Kobe sigruðu leikinn 5-1 og lagði Iniesta upp tvö mörk í leiknum. Keijiro Ogawa skoraði þrennu fyrir japanska liðið og lagði Iniesta upp tvö fyrir Japanann.

Fyrra markið kom á 13. mínútu, Iniesta átti þá flotta stungusendingu yfir vörn gestanna frá eigin vallarhelmingi . Það seinna kom á 72. mínútu og kom Iniesta sér í góða fyrirgjafastöðu og sá sinn mann á fjærstönginni sem Iniesta fann að sjálfsögðu.

Myndband af mörkunum tveimur sem og einu sem Iniesta átti stóran þátt í má sjá hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner