Fotbolti.net
12.02.26 - 13:45
Elvar Geir Magnússon

Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur

Sir Jim Ratcliffe í stúkunni.

Sir Jim Ratcliffe í stúkunni.

Canon

Mynd: EPA

Enska fótboltasambandið skoðar hvort Sir Jim Ratcliffe, einn af eigendum Manchester United, hafi brotið reglur sem snúa að ímynd enska fótboltans.

Ratcliffe sagði í viðtali við Sky News í gær að „innflytjendur hefðu tekið yfir Bretland“ og gagnrýndi Keith Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og sagði hann ekki geta tekið á erfiðum málum.

Ratcliffe er sjöundi ríkasti maður Bretlands og stærsti einstaki landeigandi á Íslandi. Hann á Grímsstaði á Fjöllum og laxveiðijarðir á norð-austurlandi.
„Þú hefur ekki efni á... þú getur ekki verið með efnahag með níu milljónum manna sem eru á bótum og stöðugan straum innflytjenda. Innflytjendur hafa lagt landið undir sig," sagði Ratcliffe í viðtalinu umdeilda.

Í dag sagði Ratcliffe að sér þætti leitt ef hans notkun á orðavali hafi móðgað fólk.

Starmer hefur kallað eftir afsökunarbeiðni frá Ratcliffe og ýmis fótboltasamtök hafa fordæmt ummæli Ratcliffe. Þar á meðal eru Kick it Out samtökin sem berjast gegn mismunun og kynþáttafordómum innan fótboltans og segja ummælin svívirðileg.

„Það er vert að minna hann á að Manchester United hefur fjölbreyttan aðdáendahóp og spilar í borg þar sem menningarsaga hefur auðgast vegna innflytjenda," segir í yfirlýsingu frá Kick it Out.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.