Atletico Madrid 4 - 0 Barcelona
1-0 Eric Garcia ('6 , sjálfsmark)
2-0 Antoine Griezmann ('14 )
3-0 Ademola Lookman ('33 )
4-0 Julian Alvarez ('45 )
Rautt spjald: Eric Garcia, Barcelona ('85)
1-0 Eric Garcia ('6 , sjálfsmark)
2-0 Antoine Griezmann ('14 )
3-0 Ademola Lookman ('33 )
4-0 Julian Alvarez ('45 )
Rautt spjald: Eric Garcia, Barcelona ('85)
Atletico Madrid er í ansi góðum málum eftir öruggan sigur gegn Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins.
LIðin mættust á heimavelli Atletico í kvöld en Eric Garcia varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark snemma leiks og koma Atletico yfir. Eftir tæplega stundafjórðung bætti Antoine Griezmann við öðru marki Atletico.
Ademola Lookman gekk til liðs við Atletico frá Atalanta í janúar en hann skoraði þriðja mark liðsins í kvöld. Hann hefur komið að þremur mörkum í fyrstu þremur leikjum sínum.
Það var síðan Julian Alvarez sem skoraði fjórða mark liðsins í uppbótatíma fyrri hálfleiks.
Pau Cubarsi fékk tækifæri til að koma Barcelona í gang snemma í seinni hálfleik þegar hann kom boltanum í netið en markið var dæmt af þar sem Robert Lewandowski var rangstæður í aðdragandanum.
Þá fékk Garcia rautt spjald undir lokin. Barcelona komst ekki áleiðis og Atletico vann öruggan sigur. Liðin mætast á Camp Nou þann 3. mars þar sem Barcelona þarf á kraftaverki að halda til að komast áfram.
Athugasemdir



