Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 12. mars 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Manchester liðin berjast um Kane
Powerade
Ensku slúðurblöðin eru með fullt af kjaftasögum fyrir sumarið.



Manchester City og Manchester United ætla að berjast um Harry Kane (26) framherja Tottenham í sumar. Hann gæti kostað 150 milljónir punda. (90Min)

Juventus vill líka fá Kane í sínar raðir til að spila við hlið Cristiano Ronaldo. (Tuttosport)

Borussia Dortmund ætlar að leyfa Jadon Sancho (19) að fara í sumar ef hann óskar eftir því. Liverpool, Manchester United og Chelsea vilja fá kantmanninn í sínar raðir. (Standard)

Chelsea og Tottenham hafa bæði áhuga á Aaron Ramsdale (21) markverði Bournemouth. (Mail)

Chelsea og Tottenham vilja líka bæði fá kantmanninn Jeremie Boga (23) frá Sassuolo á Ítalíu. Boga, sem var áður á mála hjá Chelsea, er líka á óskalista Dortmund og Valencia. (Sun)

Arsenal og Tottenham ætla að berjast við Marcel Sabitzer (25) miðjumann RB Leipzig. (Calcio Mercato)

Pierre-Emerick Aubameyang (30) segist vera ánægður hjá Arsenal en hann hefur verið orðaður við Barcelona. (Mirror)

Bayern Munchen hefur áhuga á Willian (31) leikmanni Chelsea en hann verður samningslaus í sumar. (sun)

Chelsea ætlar að reyna að fá vinstri bakvörðinn Alex Telles (27) frá Porto í sumar ef félagið nær ekki að kaupa Ben Chilwell (23) frá Leicester. (Star)

Everton hefur áhuga á Gabriel Magalhaes (22) varnarmanni Lille. (Liverpool Echo)

Leeds ætlar að kaupa franska markvörðinn Ilan Meslier (20) en hann er á láni hjá félaginu frá Lorient. (Mirror)

Aston Villa og WBA vilja bæði fá Karlan Grant (22) sem hefur skorað sextán mörk með Huddersfield í Championship deildinni. (Sky Sports)

Forseti franska knattspyrnusambandsins vill að Kylian Mbappe (21) spili með Frökkum á Ólympíuleikunum í Tokyo í sumar. (L'Equipe)

Forráðamenn úrvalsdeildanna í Þýskalandi, Ítalíu, Spáni og Frakklandi ætla að funda með UEFA í dag og óska eftir að EM í sumar verði frestað. (Football Italia)
Athugasemdir
banner
banner