Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
McGinn: Síðasti mánuðurinn hefur alls ekki verið nógu góður
Mynd: EPA
John McGinn spilaði síðasta sundafjórðunginn þegar Aston Villa vann 1-0 sigur á Lille í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í Frakklandi í dag.

McGinn hefur verið meiddur síðan um miðjan janúar en Aston Villa hefur verið í vandræðum án hans. Liðið tapaði gegn Newcastle í enska bikarnum og hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

Liðið sýndi ekki mikla takta í dag en Ollie Watkins skoraði eina markið sem var eina tilraun liðsins á markið.

„Við þurftum smá endurstillingu. Síðasti mánuðurinn hefur alls ekki verið nógu góður. Við getum ekki velt okkur upp úr því, við getum lært af því. Við þurfum að byggja ofan á þetta, við vitum að við getum gert mun betur en þetta voru góð úrslit," sagði McGinn.


Athugasemdir
banner
banner